Handbolti

Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld

Sindri Sverrisson skrifar
Einar Bragi Aðalsteinsson varð deildarmeistari með FH á dögunum og er kominn með liðinu í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn.
Einar Bragi Aðalsteinsson varð deildarmeistari með FH á dögunum og er kominn með liðinu í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn. vísir/Anton

Snorri Steinn Guðjónsson hefur valið leikmannahóp Íslands sem mætir Eistlandi í kvöld í fyrri leik liðanna í umspili um sæti á heimsmeistaramóti karla í handbolta.

FH-ingurinn Einar Bragi Aðalsteinsson spilar sinn fyrsta landsleik í Laugardalshöllinni í kvöld og er eini nýliðinn í íslenska hópnum.

Fyrirliðinn Aron Pálmarsson og Haukur Þrastarson eru frá keppni vegna meiðsla, og hið sama má segja um Elvar Örn Jónsson og Þorstein Leó Gunnarsson sem Snorri tjáði Vísi í vikunni að væru tæpir vegna meiðsla.

Björgvin Páll Gústavsson er langreynslumesti leikmaður Íslands með 269 landsleiki en næstir á eftir honum eru Bjarki Már Elísson og Arnar Freyr Arnarsson.

Þegar þetta er skrifað eru enn nokkrir tugir miða til sölu á leikinn en útlit fyrir að það verði uppselt. 

Leikurinn hefst klukkan 19:30. Boozt, einn af aðalbakhjörlum HSÍ, ætlar að blása til upphitunar í anddyri Laugardalshallar frá klukkan 18. Þar verður andlitsmálun, lukkuhjól, hraðamælingar, popp fyrir alla og fleira í boði. 

Hópur Íslands í kvöld:

Markverðir:

Ágúst Elí Björgvinsson, Ribe-Esbjerg (50/2)

Björgvin Páll Gústavsson, Valur (269/22)

Aðrir leikmenn:

Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (96/100)

Bjarki Már Elísson, Veszprém (114/393)

Einar Bragi Aðalsteinsson, FH (0/0)

Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia (10/3)

Elliði Viðarsson, Vfl Gummersbach (48/101)

Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (19/21)

Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (59/129)

Janus Daði Smárason, SC Magdeburg (82/132)

Óðinn Þór Ríkharðsson, Katten Schaffjhausen (38/113

Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (84/286)

Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (12/16)

Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (74/212)

Viggó Kristjánsson, Leipszig (55/155)

Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen (88/36)


Tengdar fréttir

„Það er stórmót í húfi“

Viggó Kristjánsson verður í eldlínunni í kvöld þegar íslenska handboltalandsliðið mætir Eistlandi í baráttunni um sæti á HM í handbolta en í þessum tveimur umspilsleikjum er í boði sæti á heimsmeistaramótinu sem fer fram í janúar á næsta ári.

Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld

Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu í handbolta mæta Eistlandi í Laugardalshöll í kvöld, í baráttu sinni um að komast á HM í janúar, og er enn hægt að fá miða á leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×